Orðskýringar
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Austurlandi (SAust) starfar í umboði félags- og tryggingamálaráðuneytisins, skv. lögum um málefni fatlaðra nr. 59/1992, hún annast rekstur og stjórnun og ber fjárhagslega og faglega ábyrgð á þjónustu við fatlað fólk á Austurlandi. Samkvæmt reglugerðum skal SAust veita fjölskyldum fatlaðra barna faglega þjónustu, ráðgjöf og leiðbeiningu og vera samræmingaraðili í þjónustu við fötluð börn á svæðinu. Sama gildir um stuðning og ráðgjöf til starfsfólk sem veitir þeim þjónustu.
Norræna velferðarmiðstöðin (Nordens Välfärdscenter – NVC) heyrir undir Norrænu ráðherranefndina og er hlutverk hennar að auka gæði í félagsmálageiranum á Norðurlöndum með rannsóknum, þróunarstarfi, uppbyggingu tengslaneta og alþjóðlegu samstarfi. Markmið stofnunarinnar er að fylgjast með þeim áskorunum sem norræna velferðarsamfélagið stendur frammi fyrir og beita sér fyrir þróun og eflingu á norræna velferðarkerfinu, m.a. með því að bæta gæði og aðgengi að félagslegri þjónustu
Nasjonalt senter for telemedisin(NST), rannsóknar- og þekkingarmiðstöð er einn af samstarfsaðilum verkefnisins. NST beitir nútímalegum samskiptalausnum við miðlun þekkingar með hjálp upplýsingatækninnar. Þótt meginhlutverk NST sé að safna, framleiða og miðla þekkingu um fjarlækningar, bæði innan og utan Noregs, þá rekur stofnunin einnig námsvef, www.helsekompetanse.no. Megintilgangur hans er að stuðla að aukinni nýtingu upplýsingatækninnar við þekkingarmiðlun og auknu þverfaglegu samstarfi sérfræðinga og fagfólks innan heilbrigðis- og félagsþjónustunnar. NST er einskonar hlekkur á milli þeirra sem hafa þörf fyrir þekkingu á ákveðnu sviði og þeirra sem bjóða þekkingu á mismunandi sviðum. Á námsvefnum er hægt að sækja námskeið, myndráðstefnur (videokonferanse), verið þátttakandi í faghópi auk þess sem hægt er að nálgast ýmsa fræðilega fyrirlestra á vefsíðunni.
Norræna Atlantsnefndin/NORA (Nordisk Atlantsamarbejde – NORA) sem heyrir undir Norrænu ráðherranefndina styrkir verkefnið með fjárframlögum. NORA er hluti af norrænu samstarfi á sviði byggðamála og svæðasamvinnu og er starfsvæðið Ísland, Færeyjar, Grænland og strandhéruð Noregs. Markmið NORA er að efla samstarf innan starfsvæðis NORA með því að styðja við atvinnu- og byggðaþróun. NORA stuðlar að miðlun þekkingar og reynslu innan svæðisins með virku samstarfi, með það að markmiði að yfirvinna þær hindranir sem felast í miklum fjarlægðum og strjálbýli.
Upplýsingatækni (UT) Upplýsingatækni fjallar um þætti sem lúta að skráningu, meðhöndlun, vinnslu og framsetningu gagna og upplýsinga sem notuð eru á flestum sviðum samfélagsins þar sem unnið er með gögnin með aðstoð tækninnar. “Með hugtakinu upplýsingatækni er vísað í það að beitt er ákveðinni tækni við gagnavinnslu og með hugtakinu tækni er átt við tölvutækni, fjarskiptatækni og rafeindatækni.
Notendastýrð persónuleg aðstoð(NPA) er félagsþjónusta sem ætlað er að uppfylla þarfir fatlaðs fólks fyrir aðstoð heima og úti í samfélaginu og njóta þannig þess frelsis í daglegu lífi er ófatlað fólk tekur sem gefnu. NPA byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf, mannréttindi og valdeflingu, en um er að ræða yfirfærslu á valdi frá þjónustustofnunum til einstaklingsins sem verður verkstjóri í eigin lífi og miðar að því að hann eigi kost á að taka fullan þátt í þjóðfélaginu á jafnréttisgrundvelli. Einstaklingurinn fær þannig fullt vald yfir eigin lífi og stjórn á allri aðstoð, m.a. með því að ákveða hvaða aðstoð er veitt, af hverjum, hvar, hvernig og hvenær.
