Tekst- og farveindstillinger


Aðferð

Aðferð

  1. Greiningar- og ráðgjafarmiðstöð ríkisins skipuleggur námskeiðslotur á árinu 2010 á sviði einhverfurófsröskunar. Kennslan fer fram í gegnum fjarfundabúnað með fyirlestrum og sýnikennslu, ásamt umræðum og ráðgjafatímum. Efni sem notað er í fyrirlestrum er sent út í tölvupósti áður en kennsla fer fram, auk þess sem lagður er fram listi yfir nauðsynlegar bækur, ítarefni og annað gagnlegt lesefni. Boðið upp á verklega kennslu og einstaklingsmiðaða ráðgjöf samhliða fræðslu.
  2. Í handbókinni verður efni safnað saman frá NST þar sem mikil reynsla er á þessu sviði, leitað verður til Þekkingarnets Austurlands, auk þess sem farið verður yfir íslensk lög og reglugerðir er tengjast málefninu.   
  3. Vefgáttin verður unninn undir sérfræðingi á sviði tölvumála, efni verður sótt í þau verkefni sem markmiðið er að birtist á svæðinu, auk þess sem leitað verður fyrirmynda í öðrum upplýsingagáttum, s.s. hjá NST.

Afrakstur verkefnisins verður skráð í skýrslu sem kynnt verður fyrir notendum, hagsmunasamtökum, þjónustuaðilum, NORA, auk þess sem hún verður birt á heimasíðu þátttakenda.  Jafnframt verður haldinn sérstakur fundur með stjórnvöldum í Færeyjum þar sem Grænlendingum verður boðin þátttaka.



Sidens visning:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica