Tekst- og farveindstillinger


Markmið

Markmið

Frá AusturlandiYfirmarkmið verkefnisins er að skoða á hvern hátt hægt er að nýta upplýsingatækina til að styðja betur við fjölskyldur fatlaðra barna í dreifðum byggðum og auka þekkingu hjá starfsmönnum sem veita þeim þjónustu.  Til að afmarka verkefnið betur var ákveðið að gera einskonar ,,pilot“ verkefni á Íslandi sem síðan mætti yfirfæra á önnur þátttökulönd.

Undirmarkmið verkefnisins eru þrjú:

  1. Bæta þjónustu við fötluð börn og fjölskyldur þeirra á Austurlandi með því að Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins (GRR) nýti upplýsinga­tæknina til að byggja upp þekkingu  á einhverfurófsröskun hjá sérfræðingum Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra Austurlandi, sérfræðingum Skólaskrifstofu Austurlands og sérfræðingum sem starfa að málefnum fatlaðra hjá sveitarfélaginu Hornafjörður. Sjá nánari verkefnalýsingu frá október 2009 unnin af GRR.
  2. Gerð handbókar við notkun upplýsingatækni við að byggja upp þekkingu, ráðgjöf og stuðning. Í bókinni komi fram hagnýtar upplýsingar um hvaða forsendur þurfa að vera til staðar og hvaða þætti þarf að taka tillit til þannig að hægt sé að nýta upplýsingatæknina til að byggja upp þekkingu, veita ráðgjöf og stuðning innan málafokks fatlaðra.
  3. Gerð upplýsingavefs þar sem upplýsingar um verkefnið og tvö önnur verkefni, um notendastýrða þjónustu og sjaldgæfar fatlanir, eru aðgengilegar. Þannig varðveitist þekking sem myndast hefur í verkefnunum  og verður aðgengilegur öllum þeim sem áhuga eða not hafa fyrir.


Sidens visning:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica