Niðurstaða - ávinningur
Markmiðið er að niðurstaða verkefnisins leiði til þess að upplýsingatæknin verði nýtt í ríkari mæli en er í dag til uppbyggingar þekkingar í dreifðum byggðum á Íslandi, jafn sem samstarfslöndum. Að sú þekking sem byggist upp hjá sérfræðingunum sem þátt tóku, nýtist til að bæta þjónustu og auka stuðning við foreldra fatlaðra barna á einhverfurófsröskun á Austurlandi svo og til þeirra sem veita þeim þjónustu, hvort sem þeir starfi innan félagsþjónustunnar eða skólakerfisins. Að verkefnið leiði til þess að möguleikar upplýsingatækninnar og þær samskiptalausnir sem þar bjóðast verði nýttar, á markvissan hátt, innan þjónustukerfis fatlaðra á Íslandi svo og samstarfslöndum, í þeim tilgangi að bæta þjónustu við fatlað fólk og fjölskyldur þeirra í dreifðum byggðum.
NORA styrkir verkefnið, þátttakendur leggja fram fjármuni vegna kostnaðar við fundi og ferðir, auk vinnuframlags starfsmanna.
