Tekst- og farveindstillinger


Önnur lönd

Önnur lönd

Norræna velferðarmiðstöðin (Nordens Välfärdscenter – NVC) heyrir undir Norrænu ráðherranefndina og er hlutverk hennar að auka gæði í félagsmálageiranum á Norðurlöndum með rannsóknum, þróunarstarfi, uppbyggingu tengslaneta og alþjóðlegu samstarfi. Markmið stofnunarinnar er að fylgjast með þeim áskorunum sem norræna velferðarsamfélagið stendur frammi fyrir og beita sér fyrir þróun og eflingu á norræna velferðarkerfinu, m.a. með því að bæta gæði og aðgengi að félagslegri þjónustu.

Nasjonalt senter for telemedisin(NST), rannsóknar- og þekkingarmiðstöð er einn af samstarfsaðilum verkefnisins.  NST beitir nútímalegum samskiptalausnum við miðlun þekkingar með hjálp upplýsingatækninnar. Þótt meginhlutverk NST sé að safna, framleiða og miðla þekkingu um fjarlækningar, bæði innan og utan Noregs, þá rekur stofnunin einnig námsvef, www.helsekompetanse.no. Megintilgangur hans er að  stuðla að aukinni nýtingu upplýsingatækninnar við þekkingarmiðlun og auknu þverfaglegu samstarfi sérfræðinga og fagfólks innan heilbrigðis- og félagsþjónustunnar. NST er einskonar hlekkur á milli þeirra sem hafa þörf fyrir þekkingu á ákveðnu sviði og þeirra sem bjóða þekkingu á mismunandi sviðum.  Á námsvefnum er hægt að sækja námskeið, myndráðstefnur (videokonferanse), verið þátttakandi í faghópi auk þess sem hægt er að nálgast ýmsa fræðilega fyrirlestra á vefsíðunni.

NST beitir sér fyrir því að upplýsingatæknin nýtist til að auka og bæta heilbrigðis- og félagsþjónustu, meðal annars í dreifðum byggðum. NST sem hefur starfað í rúman áratug heyrir undir Háskólasjúkrahús Norður-Noregs sem hefur aðsetur í Tromsø. Starfsvæðið er allur Norður-Noregur þar sem byggð er dreifð og vegalengdir langar líkt og á Íslandi. NST starfar einnig á alþjóðavísu en frá árinu 2002 hefur stofnunin haft samstarfssamning við Alþjóða heilbrigðisstofnunina WHO um að koma á, fylgja eftir og meta þróunarverkefni og þjónustu á sviði fjarlækninga.

Þar liggur mikilvæg þekking og reynsla sem getur nýst til að þróa leiðir til að koma fræðslu og leiðbeiningum frá þekkingarmiðstöðvum og sérfræðingum til foreldra fatlaðra barna og þeirra sem veita þeim þjónustu.

Norræna Atlantsnefndin (Nordisk Atlantsamarbejde – NORA) sem heyrir undir Norrænu ráðherranefndina styrkir verkefnið með fjárframlögum. NORA er hluti af norrænu samstarfi á sviði byggðamála og svæðasamvinnu og er starfsvæðið Ísland, Færeyjar, Grænland og strandhéruð Noregs. Markmið NORA er að efla samstarf innan starfsvæðis NORA með því að styðja við atvinnu- og byggðaþróun. NORA stuðlar að miðlun þekkingar og reynslu innan svæðisins með virku samstarfi, með það að markmiði að yfirvinna þær hindranir sem felast í miklum fjarlægðum og strjálbýli.



Sidens visning:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica