Tekst- og farveindstillinger


Staðan á Íslandi

Staðan á Íslandi

Félags- og tryggingamálaráðuneytið fer með yfirstjórn málefna fatlaðra samkvæmt lögum um málefni fatlaðra nr. 59/1992, annast stefnumótun, gerð heildaráætlana og eftirlit með framkvæmd laganna. Í stefnu ráðuneytisins um þjónustu við fötluð börn og fjölskyldur þeirra kemur fram að fagleg þekking greiningar- og ráðgjafaraðila skuli tryggð á öllum þjónustustigum og þjónustusvæðum.  Þar sem fámennið kann að standa í vegi fyrir sérhæfðri þjónustu skal aðgangur starfsfólks að sérfræðiráðgjöf og handleiðslu tryggður. Í því skyni skal þróa frekar nýtingu tölvu- og fjarfundarbúnað til samskipta.

Greiningar- og ráðgjafarmiðstöð ríkisins, (GRR) sem staðsett er á höfuðborgarsvæðinu, þjónar öllu landinu og gilda um starfsemi hennar lög um Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins nr. 83/2003. Markmið þeirra er að tryggja að börn með alvarlegar þroskaraskanir sem geta leitt til fötlunar fái greiningu, ráðgjöf og önnur úrræði sem miða að því að draga úr afleiðingum röskunarinnar, ennfremur að tryggja öflun, viðhald og miðlun fræðilegrar þekkingar á þessu sviði. Hlutverk GRR er að annast greiningu, ráðgjöf og fræðslu til einstaklinga, foreldra eða annarra aðstandenda og þjónustuaðila varðandi viðeigandi meðferð, þjálfun og önnur úrræði sem þörf er á.

GRR hefur nýlega tekið í notkun nýjan fjarfundarbúnað m.a. í þeim tilgangi að bæta þjónustu við notendur á landsbyggðinni.

Frá AusturlandiSvæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Austurlandi (SAust) starfar í umboði félags- og tryggingamálaráðuneytisins, skv. lögum um málefni fatlaðra nr. 59/1992, hún annast rekstur og stjórnun og ber fjárhagslega og faglega ábyrgð á þjónustu við fatlað fólk á Austurlandi. Samkvæmt reglugerðum skal SAust veita fjölskyldum fatlaðra barna faglega þjónustu, ráðgjöf og leiðbeiningu og vera samræmingaraðili í þjónustu við fötluð börn á svæðinu. Sama gildir um stuðning og ráðgjöf til starfsfólk sem veitir þeim þjónustu.

Stefna SAust er að fjölskyldum fatlaðra barna standi til boða þjónusta, ráðgjöf og stuðningur í heimabyggð í samræmi við óskir og þarfir. Á síðustu árum hefur starfsfólk SAust sótt menntun og fræðslu bæði innanlands og erlendis með aðstoð upplýsingatækninnar. Myndfundar­búnaður hefur þá helst verið notaður en á síðustu árum hefur starfsfólk í auknum mæli sótt ráðstefnur og/eða fyrirlestra sem settir hafa verið inn á Netið, þar sem hægt er að nálgast þá hvenær sem er. Jafnframt hefur fagfólk Svæðisskrifstofu tekið að sér fræðslu og eða kennslu á námskeiðum fyrir starfsfólk í þjónustu við fatlað fólk, bæði á Austurlandi og víðar á Íslandi. Námskeiðin sem Þekkingarnet Austurlands hefur skipulagt hafa farið fram í gegnum myndfundarbúnað.  Það liggur því fyrir ákveðin þekking og reynsla af nýtingu upplýsingatækninnar hjá starfsfólk SAust sem hægt er að byggja á.  

Á Austurlandi eru allir stærri þéttbýlisstaðir komnir með háhraðasamband en vandamál er í minnstu þéttbýlisstöðunum og sveitum fjórðungsins þar sem fólk þarf ennþá að notast við eldri tæknibúnað. Í fjórðungnum er starfandi stofnun sem heitir Þekkingarnet Austurlands sem í samstarfi við sveitarfélög á Austurlandi rekur námsver í flestum byggðarlögum. Námsverin eru vel tækjum búin, þau eru með öfluga nettengingu um FS netið, svo og myndfundabúnað. Námsverin gegna mikilvægu hlutverki í þessu verkefni.



Sidens visning:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica