Verkáætlun - framvinduáætlun
Verkáætlun - framvinduáætlun
Undirbúningur verkefnisins hófst í byrjun árs 2009. Í nóvember var haldin vinnufundur og námstefna á Íslandi þar sem NST hélt kynningu og fræðslu fyrir þátttakendur um þeirra reynslu við nýtingu upplýsingatækni til að byggja upp þekkingu og veita ráðgjöf í dreifðum byggðum. Jafnframt veitti NST tæknilega ráðgjöf til þátttakenda.
Greiningar- og ráðgjafarmiðstöð ríkisins skipuleggur námskeiðslotur á sviði einhverfurófsröskunar, svo og verklega kennslu og einstaklingsmiðaða ráðgjöf á árinu 2010. SAust hóf söfnun gagna í nóvember 2009 og vinnur handbókina í maí og júní 2010. Félags- og tryggingamálaráðuneytið vinnur Vefgáttina fyrrihluta árs 2010 og er áætlað að hún verði opnuð formlega í maí.
